Saturday, November 22, 2003
Myndin af Branduglunni

Hér að neðan sjáið þið hinn mæta mann Jón Helgason! Eða andskotans Brandugluna eins og hann er kallaður í góðra vina hópi!  Hér sjáið þið hans miklu fegurðu og hans kosati sem eru gleraugun hans og er hann einning sérstaklega lunkinn að hlægja að minnihlutahópum með ógeðslegasta hlátri í heimi!
Góður maður jafnframt og stefni ég nú fljótlega niður á Borgarfjörð í vinnu hjá FKS og vona að ég geti sagt ykkur eina að tvær góðar sögur af honum eftir það.

                                                                                            Þakka fyrir mig(Góða helgi)

Posted at 03:25 am by Stjáni
Make a comment

Branduglan og KK á góðri stundu í Fjarðarborg




Posted at 03:20 am by Stjáni
Make a comment

Friday, November 21, 2003
Lífsmark með Branduglunni!


Posted at 10:56 am by Stjáni
Make a comment

Wednesday, November 19, 2003
Vonsvikinn einstaklingur...

Jæja. eftir vel heppnað óvissuball á föstudaginn á Seyðisfirði var nú aldeilis haldið heim í sveitina í þeirri góðu von að fá að beja Brandinn augum.  Sú von sveik mig heldur betur þar sem ég hvorki sá né heyrði af uglukvikindinu.  Og þar sem ég fékk ekki einu sinni að heyra góða sögu af honum þá ákvað ég að skella einni góðri og klassískri sögu af Branduglunni hér inn. Svona hljómar hún.
Einn góðan veðurdag vorið 2003 þá var, að gömlum vana, verið að vinna niðurfrá í Fiskverkun Karls Sveinssonar við pökkun saltfisks.  Þennan góða dag var ónafngreind kona við vinnu og auðvitað var Jón Brandur einnig við vinnu (reyndar var hann ekkert að vinna, hann var bara að slæpast eitthvað þarna í kring).  Einhvern veginn, í 11 pásunni, þá barst umræðan að bílum og hvaða bílar voru bestir.  Nonni Kristjönu er, eins og alþjóð veit, harður aðdáandi Toyota jeppa og finnst Patrol og Subaru vera "algjört djöfulsins drasl" (Eins og Jón myndi orða það orðrétt).  Talið barst síðan að Subaru bílum og af hverju þeir væru svona mikið drasl eins og Brandurinn vildi meina. Ónafngreindu konunni sem ég minntist á hérna áðan var ekki skemmt við þessar yfirlýsingar því hún er gallharður aðdáandi Subaru bíla og kaupir sér nýjan á hverju ári. Hún hélt til dæmis fram til að lofsyngja tegundina að allir hlaðbakar sem Subaru hefði framleitt væri útbúnir fjórhjóladrifi. Þá hlakkaði í Branduglunni og sá þar með frábært tækifæri til að lækka rostann í konugreyinu. "Nei andskotinn!!" sagði Jón mjög köldum rómi og sötraði hátt á sjóðheitu kaffinu sínu. ´"Svo er alls ekki háttað, vinan"
Endaði með því að konugreyið fór heim eftir tuttugu mínútna rifrildi við Jón Brand. Og auðvitað skein brosið af  Jóni það sem eftir lifði dags. En ég get lofað ykkur því að hann vann ekkert frekar en fyrri daginn...

Posted at 08:25 am by Olli Peters
Make a comment

Thursday, November 13, 2003
Formáli (í seinni kantinum)

Þessi síða er tileinkuð aðeins einum manni. Jón Brandur, a.k.a. Branduglan, a.k.a. Nonni Kristjönu, a.k.a. Brandurinn, a.k.a. Nonni, a.k.a. Jón Helgason.  Hann er mjög sérstakur og einstakur maður og þess vegna ákváðum við að heiðra hann með þessari heimasíðu. Ég enda þennan stutta en vonandi gagnlega pistil með afar minnistæðum orðum sem ég heyrði sem ungur drengur þegar ég var á mínum fyrsta vinnudegi í vinnu hjá Kalla Sveins þegar sjö bátar voru á sjó  og gjörsamlega allir á fullu spani. Ég stóð inná kaffistofu að háma í mig Hob Nob´s kexi með bestu lyst, orðinn alltof seinn úr pásu sökum græðgi. Heyðri ég ekki þar sem Dóri kom askvaðandi fram með hendina uppí rassgatinu á sér og öskrar: "Jón, ertu ennþá í pásu?"

Posted at 05:06 am by Olli Peters
Make a comment

Saga tvö um Brandugluna

Það var nýliðið sumar er einna mest hafði verið að gera í FKS.  Þá hafi safnast upp gífurlegt magn slors og fleiri viðbjóðs.  Var þá gripið á það ráð að senda Brandugluna í slorferð mikla vegna þes arna að ekkert er hægt að nota hann í mannlegri vinnu og bara svo að hann væri ekki að þvælast fyrir vinnandi fólki með sínum viðbjóðslega hlátri og kaffidrykkju.  Þá lagði hann af stað með slorið og heimildarmann og jafnframt branfóstru með sér sjálfann Óttar "Hlunkur" Kárason.  Tekinn var tíminn á þeim félugum og var lágmarkstími þeirra 2 klukkustundir og 30 mínútur.  Er þeir rendu í rólegheitum á 5 km/klst(þykir ofurhraði á mælikvarða Branduglunnar).  Þá sagði Brandurinn þessa fleygu setningu: "Nei hver fjandinn hvað sólin er farin að skína, ætli að ég verði ekki að taka mér frí það sem eftir er dags,,.  Eftir hádeigið sást Branduglan ekki meir og ekki meira þann daginn.
Þar með var ætlunarverki hans lokið, að láta alla verða hneykslaða á letinni í sér.
Hann er Branduglan!!! Ég þakka fyrir mig í byli og vil endilega ða biðja fólk sem slysat hér inn að skrifa okkur comment eða message á síðuna, vil koma þökkum til Olla Pé fyrir mikið og ötult starf.


Posted at 05:04 am by Stjáni
Make a comment

Branduglan hf.

Jæja við félagarnir höfum ákveðið að stofna hlutafélag.  Branduglan hf.  Skömmu eftir að félagið fór á verðbréfamarkað þá rauk Dow jones vísitalan upp úr öllu veldi og hefur ekki verið svona há síðan í frostavetrinum mikla 1742.  Jón Helgason a.k.a. Branduglan hélt uppá þessi merku tíðindi með að taka sér pásu í samfleytt 73 klukkustundir og hlægja að minnihlutahópum úr fjarlægð innra með sér...
Við viljum óska Branduglunni til hamingju með þennan merka áfanga....

Posted at 04:25 am by Stjáni
Make a comment

Monday, November 10, 2003
Saga eitt um Brandugluna

Það var eina helgi í október er við félagar vorum við vinnu í FKS og vildi svo til að móðir mín átti afmæli þá sömu helgi.  Ákvað hún að vera rausnarleg og sendi mig með köku í vinnuna.
Vorum við félagar margoft búnir að gæða okkur á henni bæði í pásum og kaffi.
Þá var það fljótlega fyrir kaffið er við vorum í kafi í aðgerð að við sáum innum gluggann á kaffistofunni að andskotans Branduglan hafði komist í kökuna. fórum við nú að glugganum og bentum honum á hvern andskotann hann væri að gera þarna en hann lét sem að hann heyrði ekkert héllt áframað troða í kjaftinn á sér svo frussaðist út úr honum er hann hló sínum ógeslega hlátri!!!!!!!!
Þar með var ætlunarverk hans fullkomnað að gera einhverjum grikk!

Posted at 09:33 pm by Stjáni
Make a comment

Kostir og gallar Branduglunnar!

Hér koma nokkrir góðir punktar um Brandugluna
SEM DÆMI:
Hann er frekar ljótur....
Hann er ótrúleg óskepna..
Hann er gráhærður...
Hann er rauðhærður....
Hann er sköllóttur..
Honum finnst gaman að ganga í grænum flíspeysum..
Hann á bara skítugar og slitnar gallabuxur.....
Hann veit ekki hvað er vinna og kann það ekki..
Hann hefur gaman af því að gera grín af Bakka Gvendi...
Hann hefur gaman af því að gera grín af skátbít....
Hann heldur að hann kunni á gröfu sem er stór misskilningur...
Hann er frekar bröndóttur...
Hann á neftóbaksbyrgðir sem ég rakst á..
Hann er töff...
Hefur gífurleg lyklavöld...
Stjórnar Kalla Sveins eins og hundi.....
Hann er oddvitafrú.....
Hann slær alltaf rafmagninu út af öllum hreppnum.....
Hann er BRANDUGLAN!!!!!!!!!!

Posted at 11:45 am by Stjáni
Make a comment

Vinafélag Branduglunnar

Góðann dag, ég heiti Kristján Geir Þorsteinsson og tók þá ákvörðun ásamt þeim félögum Hallgrími Inga og Olgeiri Pé að nú gengi þetta ekki lengur, nú yrði Branduglann að fá almennilega umfjöllun! Þessi síða er semsagt tileinkuð Jóni Helgasyni og öllum hans óskepnuháttum og hans viðbjóðslega hlátri.
Til að byrja með þá komumst við að því er við sátum í mestu makinduð í pásu í Fiskvinnslu Karls Sveinssonar að Brandurinn eins og hann er líka kallaður hefði misskilið hugtakið pása eða kaffi, hann vinnur semsagt á meðan aðrir eru í pásu eða kaffi en á meðann aðrir vinna þá flatmagar hann inni á kaffistofu og malar við Jörfa Gvend eða einhvern annann sauð. Þetta gerir það að verkum að Jón hefur náð þeim mikla áfanga ða hafa unnið í FKS í þó nokkur ár en samt aldrei gert eitt einaasta handtak!
Til eru margar skemmtilegar sögur af Brandinum og munu þær vera rifjaðar upp í rólegheitum á þessari síðu. En þessi síða mun vera mjög róleg, líklega jafnróleg og Branurinn er.
Eitt ætla ég að minast á hér í lokinn um hann Jón. Mörg af ykkur velta því sjálfssagt fyrir sér afhverju í fjandanum hann er kallaður Branduglann. Nú það er einfalt svar við því hann er nefninlega þrískiptur, hann er:1/3 Köttur(Bröndóttur að lit), 1/3Ugla(Bröndótt að lit) og 1/3 Jón(einnig bröndóttur að lit).

Þá þakka ég fyrir mig í bili en kíkjið undir rúmin ykkar áður en að þið farið að sofa,það er aldrei að vita nema að fjandans Branduglan sé á svæðinu!

Posted at 12:10 am by Stjáni
Make a comment



Þetta mun vera hin sænski Brandur

   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

blogdrive